06.06.2006 12:11:24 / Gullý

city-angels :)

 

:D

Við ætlum að hætta mað þessa síðu:D allaveganna geima hana eyðum henni ekki:) haha

EN VIÐ ERUM KOMNAR AFTUR Á

CITY-ANGELS 8)

www.blog.central.is/city-angels

-GullýAnna&María-


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 15:09:47 / Gullý

Helgin :)

HÆLLÓ!!

já ég held að það sé best að ég bloggi bara um helgina maría gerði svaaka blogg um ferðina:D...

En á laugardagskvöldið þá fór ég til maríu og var með henni að passa fórum svo að hitta telmu og helenu á ný-ung en á leiðinni þangað komu katla, aron og þröstur að sækja okkur og fóru með okkur á ný-ung svaka stuð!;) svo var bara farið á rúntinn og já ég skrifa ekkert meira um það:) haha svo skutlaði þröstur okkur bara heim eitthvað um 2 held ég eða man ekki alveg;)

Svo á sunnudaginn þá komu telma og helena til mín og maría kom svo eitthvað klukkutíma seinna:) og við vorum að horfa á 10 things I hate about you skemmtileg mynd:D hafði aldrei sé hana:D svo fór telma heim að borða baunarétt:P haha hún var ekki glöð með það:$ hehe svo eftir kvöldmat fór ég til maríu og við fórum í bíó með fredda:D man ekki hvað myndin heitir en hún var skemmtileg:haha:.....á leiðinni heim hittum við svo villa stóra og litla og grétar og löbbuðum með þeim út um allt stoppuðum líka eitthvað að tala:D þá komu eitthverjir tveir strákar og buðu okkur far með ógeðsleri rödd8|,, og við vorum fljótar að segja nei! haha

En já í dag er ég bara búin að vera að gera mjög lítið:$ var eitthvað að telja flöskur áðan og svonna:D en í kvöld ætla ég með fjölsydunni í rvk eitthvað út að borða og svonna:D! það verður bara gaman:)

*** og þessar myndir fara bráðum að koma úr ferðalaginu maría er bún að setja sínar en mitt kemur bráðum þetta er eitthva svo sló8| hehe;)

-GullýAnna-


» 8 hafa sagt sína skoðun

03.06.2006 21:16:06 / María

Skóólaferðalagið !

Jáá sæl og blessuð !

Langt síðan ég hef bloggað hérna.. en ég ætla að koma með 1 blogg um skólaferðalagið :)

Þriðjudagur : 

Mættum uppí skóla kl. hálf 8. Allir vel ferskir og fínir ;) Ég mætti nú bara í náttfötunum, þurftum nebbla að sitja svo lengi í rútunni og svona ! En jæja það var bara ágætt í rútunni, sat við hliðina á Gullý, og hinar voru aftast :) Jæja,, svo fórum við í River rafting, það var gegggjað :haha: Ég var með stelpunum + Írisi, Sindra, Gylfa og Steinunni Njáls í bát. Við stoppuðum líka þarna hjá einhverjum kletti, þar máttu þeir sem þorðu stökkva. Flest allir strákarnir stukku og svo allar stelpurnar nema allar Telmurnar 3 ;) Skræfur.. hehe,, neinei :D En svo mátti Ásta náttla heldur ekki stökkva útaf hnénu :/ En svo héldum við bara raftinginu áfram og þá máttum við stökkva í vatnið, held að ég og íris höfum verið mest í því 8) Hahah :D Jáá,, þetta var bara æði ! Eftir þetta fórum við bara aftur í hermannarútina okkar og fórum uppí húsið sem við klæddum okkur í í, þar var grillað fyrir okkur og fínerí :) síðan skelltum við okkur bara í sund og síðan fórum við að Hofi þar sem við sváfum. Allir vel þreyttir og blautir eftir þetta allt saman, við græjuðum okkur bara í svefninn og svo var bara slappað af, nuddað ( þar á meðal nuddaði Jóhanna hana Steinunni Njálsdóttur og nei kjéllan var bara á brjóllanum, strákunum leist nú vel á það held ég bara :D ;) og síðan farið í háttinn ! :)

Miðvikudagur :

Vöknuðum kl. hálf 9, fórum í morgunmat og héldum svo af stað í fjallgöngu, gengum upp Ingólfshöfða. Það var svosem ágætt,, eða allavegana á leiðinni afþví að ég og Katla sváfum bara og létum fara vel um okkur á einhverri tösku þarna í bílnum, eða bílnum, þetta var traktor með einhverri kerru sem við vorum á :D hehe.. Jæja svo gengum við þetta fjall, sem var ágætt bara eða svona :) en Ásta svaf nú bara í rútunni í einhverja 3 tíma,, oj heppin ! En eftir þessa ferð fórum við bara í sund, eins og alla dagana ;) og síðan bara heim. Þar elduðu Andrea og fl. fyrir okkur kjúlingahammara ( eins og Svava og Tinna segja ) :). Svoooo,, var bara slappað af eins og alltaf eða kannski aðeins of mikið slappað af. Það voru nú bara allir nuddandi alla þarna,, uss. Sem var ekkert nema gott bara :haha:. En síðan fóru sumir bara að sofa, neinei svo var maður ekki bara vakinn kl. 5 eða 6 með einhverjum pottalokum og öskrum í Þóri og einhverjum fl., Siffi hélt að kl. væri bara orðin 8 og allir ættu að fara á fætur,, en nei þá var hún bara 5 eða 6 ! haha,, hann var ekki sáttur með það :!: En ég fór nú bara aftur að sofa.

Fimmtudagur-Föstudagur :

Vorum vakin kl. 8, fórum í morgunmat og síðan var bara einhvað frjálst. Svo fórum við að skoða jökulsárlónið, sáum alla þessa fallegu jökla,, hehe :) sem eru einhvað um 1000-1500 ára gamlir ef ég var að hlusta rétt,, haha :D Síðan sáum við líka 2 seli þarna ! Jáá.. svo fórum við bara heim og við stelpurnar + íris gerðum pizzurnar fyrir kvöldmatinn. Svo skelltum við okkur í klettaklifur :D Fólk var mishrætt við að klifra, og með mislangt.. hehe :) En Berglind, Margrét, ég og Thelma Rúnars vorum einu stelpurnar sem náðu að klifra alla leið á þessum 2 mín sem við fengum, Thelma klifraði þetta nú bara á 1 mín. og 12 sek, góður :haha: ekkert smá fljót, en neinei hann Siggi klifraði þetta nú bara á 35 sek. hahaha, hann var eins og Spiderman eða einhvað 8|! Svo fórum við bara í sund og síðan heim að græja þessar yndislegu pizzur sem við gerðum :D Síðan var kvöldvakan og um hana sáu Sigfús, Þórir, Egill, Brynjar og Aron ( held ég sé ekki að gleyma neinum ), þeir byrjuðu á því að leika prósaljóðin okkar, síðan var danskeppni! Þáttakendurnir voru, Siffi og Egill á móti Eysteini og Steinunni Njáls, váá þetta var BEST sko ! hahaha :D Sniiilld, þau fóru þarna á kostum, enda unnu þau með öll atkvæðin held ég bara ;) Jæja svo var lokaatriðið, og það var hann Aron sem tók nokkur létt dansspor í hvíta nylongallanum hennar Steinunnar. Eftir þessi frábæru atriði tóku strákarnir upp gítarana og það var sungið hástöfum langt fram á nótt :) Thelma og Hildur alveg í s-unum sínum að syngja þarna einar ! ;) Jáá svo ákváðu, ég, Telma Dís og Telma Ýr að fara í smá fimleika. Gaman af því :D Fórum þarna í afturábakbrýr, kraftstökk og læti ! Svo voru nú flestir bara komnir upp í herbergi og farnir að nudda, en ekki hvað ? Hann Sigfús fékk nú nuddið sitt,, og það var bara allur pakkinn, hausanudd og allar græjur :) Nudduðum hann í 1 og hálfan tíma,, ég sofnaði nú samt þarna inná milli.. haha :D En þegar ein stelpan ætlaði að fara að nudda nárann til þess að hann myndi fá standpínu þá fór hann nú bara ! haha :D En kl. 2 þá fóru ég, Hildur og Telma nú bara niður í eldhús að fá okkur að éta takk fyrir ! Litlu átvöglin :D Síðan hópaðist fólk nú þarna niður í eldhús, nokkrir voru að sniffa krydd, aðrir að drekka einhverja Kardimomudropa ( ? ) en hinir fengu sér sítrónusafa :D Það var nú eins og sumir þarna væru vel í því,, en það var nú bara leikið held ég ! En misheitt var á milli fólks þarna, einhvað að ské undir sæng.. hmm,, það er nú spurning ? Hahaha.. Ó well,, síðan um 3 leytið þá rotaðist ég. Vaknaði reyndar oft á milli, strákarnir allaf að skrifa á alla, gera yfirvaraskegg og svona flott ! En svo var ég bara alveg vöknuð um 6 :D Hress bara sko.. Fór nú bara að bursta mig og græja fötin og svona. Síðan kl. 8 eða 9 fórum við og fengum okkur morgunmat og síðan bara að shina húsið. Allt var orðið spikk&span um 10-11 leytið og þá fórum við á stað og allir náttla alveg rotaðir í rútunni. Komum heim kl. hálf 4 eða 4 og fengum þá útúr Samræmdu, ég náði öllu :) En er engann veginn sátt ! Jæja nóg um það svo fór ég bara heim, síðan til Tinnu frænku að kíkja á hundinn sem hún og Bói voru að kaupa sér,, ekkert smá flottur, hann heitir Aimar eins og einhver fótbolta kall :) Já ég ákvað svo bara að gista hjá henni, var rötuð eftir 5 mín af einhverri mynd sem við tókum,, hehe :) fór þá bara uppí rúm og vaknaði kl. 12 og við fórum að kaupa einhverja gjöf, síðan komum við bara heim og svo fór ég heim kl. 5, fór aðeins í tölvuna og er svo bara hér að blogga, er að passa og ætla svo örugglega bara að hitta stelpurnar í kvöld :)

Myndirnar koma í kvöld eða á morgun ;)

 NÝTT á síðunni :

* Nýjar myndir - [ Skólaferðalagið ]

* Nýtt blogg

* Nýjar myndir á leiðinni :D

* Nýtt mánaðarins á leiðinni líka ;)

En VÁ, þetta er orðið SOLDIÐ langt blogg núna 8| Hehe.. þannig að ég ætla bara að hætta núna :)

Nó wait, gullkorn ferðarinnar :

Jón Þór og Marel voru einhvað að spurja Telmu Ýr hvað  allskonar líkamspartar hétu á ensku, jæja attlæ með það :) Hún vissi nú einhvað samt! 

Þeir : hvernig segiru enni ? 

Hún : uuu,, veit ekki ! 

Þeir : Döö,, forehead ! 

Hún : JÁÁ,, er þá haka ekki UNDERhead? :haha:

Hahahaha,, þú ert snillingur Telma ! ;) 

-María-


» 18 hafa sagt sína skoðun

29.05.2006 16:36:00 / María

!

Hæmm !

Já eins og allir vita þá er Telma hætt :| og hún tók líka allar myndirnar útaf.. en það koma bara nýjar myndir inná frá skólaferðalaginu á föstudaginn eða laugardaginn ;) og blogg um það líka :haha:

Þannig að þangað til næst,, bara bææj ;*

Og allir að skemmta sér vel í ferðalaginu,, hlakka til að sjá ykkur á morgun ;)

promise.jpg

 

og já eitt svona í lokinn :

 

13 ára stelpa að nafni Linda fór til prestsins :

Linda : Blessaðu mig faðir, því ég hef syndgað.

Prestur : Segðu mér frá barnið mitt.

Linda : Ég kallaði karlmann helvítis fífl.

Prestur : Afhverju gerðiru það ?

Linda : Hann gerip í hendina mina.

Presturinn : Svona ?

Linda : Já faðir.

Presturinn : Það er engin ástæða fyrir að kalla hann helvítis fífl.

Linda : Svo greip hann í brjóstið á mér.

Presturinn : Svona ?

Linda : Já faðir.

Presturinn : Það er engin ástæða fyrir að kalla hann helvítis fífl.

Linda : Svo kyssti hann mig.

Presturinn : Svona ?

Linda : Já faðir.

Presturinn : Það er engin ástæða fyrir að kalla hann helvítis fífl.

Linda : Svo klæddi hann mig úr öllum fötunum.

Presturinn : Svona ?

Linda : Já faðir.

Presturinn : Það er engin ástæða fyrir að kalla hann helvítis fífl.

Linda : Svo byrjaði hann að ríða mér á fullu.

Presturinn : Svona ?

Linda : JÁ FAÐIR! JÁ FAÐIR! JÁ FAÐIR!

Presturinn : Jæja, þetta var nú gott. En það er samt engin ástæða til að kalla hann helvítis fífl.

Linda : Já en faðir, svo sagðist hann vera með AIDS.

Presturinn : “HELVÍTIS FÍFLIÐ!”

 

 

 

 

Hahaha snilld :haha:

-María-


» 12 hafa sagt sína skoðun

28.05.2006 23:15:52 / Telma

HÆTT

ÉG ER HÆTT Á ÞESSARI SÍÐU!!!!


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.05.2006 23:03:31 / Gullý

helgiiin:D

Hallóóó! :)

Jáá í gærkvöldi þá vorum við bra eitthvað að horfa á spólu og fórum svo á rúntinn með Andra og Magnúsi! :) sáum fullt af fullu og skemmtilegu fólki :D rosa stuuð bara hjá okkur:P komum svo heim eitthvað um hálf 3 og þá fór maría bara heim til sín og þá var bara farið í háttinn8) haha:D

Svo í daaag! þá var farið í sund og við fengum smá lit8):D ógó brúnar skohh :haha: síðan fórum við bara heim til mín og svo á leikinn,, fengum pizzu og sonna ;) það var sko skíta kuuuldi þannig eftir leikinn fórum við bara aftur heim til mín og fengum okkur heitt kakó og eitthvð með því og horfðum á tv;) og já svona b.t.w. þá vann Keflavík 3-0 :haha: og núna erum við bara eitthvað í tölvunni:D og íris er á leiðinni yfir til okkar;)

en ekkert meira að segja frá þannig bara bæjó;*

 

-GullýAnna&María-


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.05.2006 17:43:11 / Gullý

:D

Hæj :)

Jáá, í gær fórum við í starfskynningu ( ég og María ) á Tannlæknastofu :) og það var bara mjög fínt;) fengum að halda á ryksugunni og læti:D Svo fórum heim að sofa, frá 3-7 haha:) fengum okkur svo pítsu og horfðum á one tree hill:) og fórum á ný-ung með stelpunum,, og svo með kötlu heim til magna því aron var þar:D vorum bara eitthvað að horfa á tv ;) stelpurnar fóru svo eitthvað á rúntinn og ég og hildur ætluðum en enduðum heima hjá mér:D

Svo í dag fórum við í bæinn og ætluðum í sund en hættum við og fórum bara að skoða í búðir og éta Ben&Jerry´s ís:P María keypti sér belti,hvítt pils og eyrnalokka en ég ekki neitt!:) svo vorum við bar að koma heim núna:) og ætlum bara að gera eitthvað skemmtilegt í kvöld:D

-GullýAnna&María-


» 12 hafa sagt sína skoðun

27.05.2006 02:41:18 / María

Video-ið þegar Unnur Birna datt !

Hellú !

Jáá eins og flestir vita þá datt Unnur Birna beint á nefið og kórónan og alles bara flaug af 8| Jæja,, við hlógum nú soldið mikið, en vorkenni henni samt :/ en hérna getið þið kíkt á það :

http://www.youtube.com/watch?v=csR4de6EIoQ

-María-


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.05.2006 23:26:31 / María

Tileinkað Fredda ;)

Hææj :)

Herðu já í gær þá horfðu ég, Gullý og Íris á Top Model og svo Ungfrú Ísland eftir á :D Og auðvitað vann Sif þetta :haha: ooog ég öskraði ekkert eða neitt skoo :$ Hahaha :D

Herðu jájá nenni ekki að blogga meir,, þetta blogg var nú eilla bara tileinkað honum Fredda ! Bara afþví að hann var svoo elskulegur að senda mér þessar ææææðislegu myndir (Y) Njótið ;) :  

   
Þetta er speees !
   
Jáá,, skemmtilegt að sjá þessa hlið á honum ? :lol:
Endilega kommentið á þessar frábæru myndir ;) haha..

-María-


» 19 hafa sagt sína skoðun

25.05.2006 18:03:44 / Telma

Nýjar myndir !!!

Hæjhæj :)

Komnar nýjar myndir,,,

Frá því við vorum eitthver tímann hjá gullý um kvöldið og svo eftir samræmdu líka hjá gullý ;)

 
*Telma Dís*

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.05.2006 17:37:45 / María

Starfskynning + klipping :)

HæHæ :)

Jáá.. í dag þá fóru ég og Gullý í starfskynningu á snyrtistofu Huldu :) Það var bara mjög fínt þar, gerðum reyndar eiginlega ekki neitt ! Haha :D Við þurkuðum bara af og röðuðum einhverjum naglalökkum, svöruðum í símann og svo tók Gullý naglalakk af tásunum á einhverri konu (Y) s.s alveg fráábært ! ;) En síðan fórum við bara úti í bakarí fyrir kellingarnar, komum svo aftur og vorum aðeins lengur þar en síðan kl. 2 fór ég í klippingu og var bara að koma heim núna :) Ætlaði að lita það karamellubrúnt en þorði ekki :$ haha :D þannig að ég setti bara ljósar- og karamellustrípur :)

mmm.. Þetta er náttla baara flott ! Eins gott að við þurftum ekki að vaxa svona hárugar og fínar lappir,, og hvað þá bikiní vax 8| Vorum einmitt að tala um það hvað það væri ógeðslegt að þurfa að vera konan sem tekur það.. Jummí :D

Herðu stelpur svo er bara Top Model og síðan Ungfrú Ísland :haha: Ég verð brjáluð ef Sif vinnur þetta ekki ! Mér finnst hún langmyndarlegust þarna og svo virðist hún bara vera mjög góð stelpa sem er með einhvað í kollinum ;)

En jæææja,, þetta var nú aldeilis fráábært blogg hjá mér (Y) þannig að ég er hætt núna :D

-María-


» 13 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 13:59:21 / Gullý

blóð, nálar og sjúkrahús:/

ALLAR MYNDIRNAR ÚR BÚSTAÐNUM Á KOMNAR INNÁ !!! ;)

Takk æðislega fyrir mig ;*

*Telma Dís*

msn_icons_doll_Love_15girl

hæhæ:D....já ég ætla að koma með stutt blogg hérna:) ásta sagðist vera farin að sakna ljóskulegu blogganna minna:haha: hehe en ég ætla sko að reYna að standa mig í því að vera gáfuð svo ég fari að passa inní:) haha;)

En ég veit ekki hvar ég á að byrja ömmm í gær bara skóli og já það sem við erum að gera þar er að hangsa ekkert annað:$ en haha ég var eitthvað að bíða eftir Telmu í gær eftir skóla og fór eitthvað í fótboltaspilið með aron og ég VANN8) reindar afþví að arnþór hjálpaði mér en það er annað mál:D svo kom Brynjar eitthvað og fór að skrifa inn í hendina á mér og ég vissi ekkert hvað þetta þíddi og hann fór bara! svo kom telma til mín og ég spurði hana og hún bara Gullý Afhverju varst þú að skrifa Vegina(held að það sé svona) inn í hendina á þér?:$ og ég bara hey brynjar gerði það! ég veit ekki hvað þetta þýðir og hún hló soldið af því:) haha gaman gaman:)

En svo í dag þá fórum við upp á spítala bekkurinn að skoða sem var bara mjög gaman:D stóðum fyrir utan myllubakka öll í kremju að reyna hlýja okkur meðan að við vorum að bíða eftir strætó:D og það mátti eitthver fara í blóðprufu til þess að sýna okkur og Telma hún gerði það og ég bara neeei! en já hún er hörku tól8) ógeð svona nálar og blóð8| og já mér verður alltaf illt í maganum inni á spítölum skrítið! en svo fórum við aftur upp í skóla og fengum gunna skólastjóra til þess að gefa okkur frí í leikfimi þannig að við vorum bara búin í skólanum:D

en ég veit nú ekki alveg hvað ég á að segja meira:!: en pæliði í því að borða kisumat:/ eins og ég var að passa systir mína um daginn og lét hana á gólfið að leika sér og svo þegar að ég leit á hana var hún byrjuð að borða kisumtinn8| og henni fannst það ekki vonnt því að hún var ekki sátt þegar að ég tók þetta af henni! haha:D og já ég hélt að ég myndi gubba af lyktinni sem var af banninu eftir þetta jakk!:| en já sumt fátækt fólk borðar samt kisumat:/

og já omg! horfðuði á O.C í gær laang sætasti strákurinn í þessu er að deygja æjj váá ekkert smá sorglegt! haha æjj ég get fest mig inn í svona þáttum:) endalaust gaman:D hehe

en já svo ætlar telma að klára að setja myndir og ég ætla líka að reyna þetta:D þannig þetta fer allt að koma;) en komið nó núna;)

hérna er O.C. fólkið fann samt enga mynd af Jhonny:D


» 11 hafa sagt sína skoðun

22.05.2006 18:29:39 / María

Problem !

Hæ !

Var að spá.. Hvaða myndasíðu er best að nota? til að setja inn myndir og svo hér inná ;) samt fyrir utan p.trail,, það er allt of slow !

Vinsamlegast einhver að svara fljótt til þess að við getum sett myndirnar inná ;)  

-María-


Samt komnar nokkrar myndir inná haha restin kemur örugglega í kvöld :)

-Telma-


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.05.2006 23:45:18 / María

NÝ Síða ! ;)

Hæj :)

Jáá.. eins og þið sjáið þá erum við komnar með nýja síðu ;) Nennum ekkert að koma með einhvað svaaka blogg til að byrja með ! :D

MySpace Layouts

En þessi síða er í vinnslu,, þetta er allt að koma ;) Endilega fylgist með :*

- The-Fuckers -


» 3 hafa sagt sína skoðun